Ég vil spila í öllum leikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. október 2012 06:30 helgi valur Fagnar hér marki í leik með sænska liðinu AIK.nordicphotos/getty
Fótbolti Helgi Valur Daníelsson hefur verið fastamaður í landsliði Lars Lagerbäck en missti af síðustu tveimur leikjum vegna veikinda. Hann fór með liðinu til Albaníu en var kominn með hita strax við komuna til Tírana. Eftir leikinn fór hann aftur til síns heima í Svíþjóð og náði sér fljótt og vel. „Það er reyndar ekki vitað nákvæmlega hvað var að hrjá mig," segir Helgi Valur við Fréttablaðið. „Það var engin niðurstaða sem fékkst úr öllum þeim rannsóknum sem gerðar voru og talið líklegast að þetta hafi verið einhvers konar vírussýking. Það er ekki talið að þetta hafi verið neitt hættulegt þó svo að það sé vissulega óþægilegt að vita ekki hvað þetta var." Aldrei fundið fyrir öðru einsHelgi Valur segir að hann hafi veikst nokkuð illa aðfaranótt fimmtudags en leikur Íslands gegn Albaníu fór fram á föstudeginum. „Ég vaknaði með svakalegan hausverk og verk fyrir brjóstinu. Ég hef aldrei fundið fyrir öðru eins áður. Ég gisti því á sjúkrahúsinu næstu nótt og var betri daginn eftir." Þegar íslenska liðið hélt heim á leið til þess að spila við Sviss á Laugardalsvellinum hélt Helgi Valur aftur til síns heima. Ísland tapaði leiknum, 2-0, og var einnig án Arons Einars Gunnarssonar sem tók út leikbann. Þeir spiluðu saman á miðju Íslands í fyrstu tveimur leikjum liðsins í undankeppni HM 2014 með ágætum árangri. „Það er alltaf svekkjandi að missa af leikjum en það er lítið við því að gera þegar maður veikist," segir hann. „Það er langt í næsta keppnisleik með landsliðinu og margir leikmenn sem banka á dyrnar. Það eina sem ég get gert er að standa mig með mínu félagsliði fram að næsta leik." Síðan Lagerbäck tók við íslenska landsliðinu hefur Helgi Valur verið valinn reglulega og notið trausts landsliðsþjálfarans. „Maður er í raun enn svekktari fyrir vikið því mér finnst ég í fyrsta sinn vera í mikilvægu hlutverki í landsliðinu. Ég hef fengið traust frá þjálfaranum og vil auðvitað taka þátt í flestum leikjum. Maður vill auðvitað ekki tapa sætinu sínu." Helgi Valur hefur spilað í Svíþjóð í sex ár og neitar því ekki að það hafi ef til vill hjálpað til að landsliðsþjálfarinn sé sænskur og vel að sér í sænska boltanum. Ari Freyr í miklum metum„Hann fylgist auðvitað vel með öllum leikmönnum. Það getur þó verið að hann horfi á sænsku deildina aðeins öðruvísi augum en margir Íslendingar enda hefur hann tekið leikmenn þaðan sem hlutu ekki náð fyrir augum fyrri þjálfara, eins og Ara Frey [Skúlason] sem hefur þó verið í miklum metum hér úti í mörg ár," segir Helgi Valur. Ísland mætir næst Andorra í æfingaleik ytra þann 14. nóvember næstkomandi en næsti leikur í undankeppni HM 2014 verður gegn Slóveníu í mars á næsta ári.
Fótbolti Mest lesið Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir harkalegt slys Sport Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Enski boltinn KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Fleiri fréttir Blikar sagðir vera að landa Ívari Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Sigdís Eva hetjan í fyrsta leik KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt Willum þurfti að hætta út af of miklum snjó Gerðu góða ferð yfir litla beltið Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Nökkvi lagði upp í Íslendingaslagnum Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Karólína hetjan á ögurstundu Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Sjá meira