Erlent

Lítt hjálpleg úrslit

Héraðsstjórnir í Galisíu og Baskalandi voru kosnar í gær.
nordicphotos/AFP
Héraðsstjórnir í Galisíu og Baskalandi voru kosnar í gær. nordicphotos/AFP
Andstæðingar spænsku ríkisstjórnarinnar unnu sigur í héraðsstjórnarkosningum í Baskalandi í gær, samkvæmt útgönguspám, en stjórnarflokkurinn vann aftur á móti sigur í Galisíu.

Mariano Rajoy forsætisráðherra fær því misvísandi skilaboð, en stjórn hans hefur staðið í ströngu við að skera niður í ríkisfjármálum og gæti þurft á fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að halda.

Úrslitanna var beðið í von um að sjá af þeim hvort aðhaldsaðgerðirnar eigi stuðning vísan.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×