Erlent

Djúpar boranir ollu jarðskjálfta á Spáni

Jarðskjálftinn varð í maí árið 2011 og kostaði níu manns lífið.
nordicphotos/AFP
Jarðskjálftinn varð í maí árið 2011 og kostaði níu manns lífið. nordicphotos/AFP
Níu manns létu lífið og nærri 300 hlutu meiðsli þegar jarðskjálfti, sem mældist 5,1 stig, reið yfir bæinn Lorca á Spáni þann 11. maí árið 2011.

Nú er komið í ljós að boranir bænda eftir vatni hafi valdið þessum skjálfta. Undanfarna áratugi hafa þeir borað æ dýpra eftir vatni, og þar með gengið æ meir á grunnvatn á vatnasvæði rétt við misgengissprungu sem brast í skjálftanum. Vísindamenn frá Kanada, Ítalíu og Spáni segja líklegt að jarðskjálfti hefði orðið á þessu svæði fyrr eða síðar, en boranirnar hafi framkallað hann á þeim tíma sem hann varð.

Þetta var einn harðasti jarðskjálfti á Spáni í meira en hálfa öld. ?Orsökin er greinilega tengd landbúnaðinum,? segir Miguel de la Doblas Lavigne, jarðfræðingur við Náttúruvísindasafn Spánar. ?Þetta er eins og svampur sem vatn er kreist úr. Þyngd klettanna veldur því að jarðvegurinn lætur undan og minnstu breytingar nálægt virkri misgengissprungu eins og Alhama de Murcia-sprungunni geta verið dropinn sem fyllir mælinn, sem er það sem gerðist.?

Hann sagði það algengt á Spáni að bændur tækju meira vatn en góðu hófi gegnir. ?Allir grafa sinn eigin brunn. Þeim er sama um allt,? segir hann. ?Ég held að í Lorca gæti komið í ljós að um 80 prósent af brunnunum hafi verið ólöglegir.?- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×