Hjólreiðamaðurinn var skotinn fyrst 22. október 2012 00:00 Morðstaðurinn í Frönsku ölpunum Tvær breskar stúlkur, sjö og fjögurra ára, lifðu skotárásina af. nordicphotos/AFP
Vitnisburður Zainab al-Hilli, sjö ára stúlku sem lifði af skotárás í Frakklandi, hefur breytt þeirri mynd sem franska lögreglan hafði gert sér af atburðarásinni. Svo virðist sem hjólreiðamaður, sem fannst látinn skammt frá bifreið fjölskyldu stúlkunnar, hafi fyrst verið skotinn. Að því búnu hafi morðinginn beint vopni sínu að föður stúlkunnar, sem hafði séð það sem gerðist. Loks hafi hann snúið sér að öðrum úr fjölskyldunni sem sátu í bifreiðinni. Foreldrar stúlkunnar létu þar lífið ásamt ömmu hennar, en sjálf særðist hún illa af skotsári. Systir hennar, hin fjögurra ára gamla Zeena, lifði einnig af skotárásina með því að fela sig undir fótum móður sinnar í aftursæti bifreiðarinnar. Svo virðist sem faðirinn, Saad al-Hilli, hafi verið fyrir utan bifreiðina ásamt eldri stúlkunni þegar skotið var á hjólreiðamanninn. Hann hafi síðan reynt að aka burt, en fest bílinn í gljúpum jarðvegi og þar af leiðandi hafi fjölskyldan ekki komist undan morðingjanum. Með rannsókn á vettvangi hefur að sögn lögreglu tekist að staðfesta frásögn stúlkunnar. Fjölskyldan bjó í Bretlandi en var á ferðalagi í Frönsku Ölpunum þegar morðinginn varð á vegi hennar. - gb
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira