Erlent

Fundu plánetu með fjórar sólir

Stórmerkileg uppgötvun var gerð við reikistjörnuna PH1.
Stórmerkileg uppgötvun var gerð við reikistjörnuna PH1.
Áhugamenn um stjörnufræði duttu niður á stórmerka uppgötvun á dögunum þegar þeir komu auga á reikistjörnuna PH1 sem er í nágrenni við fjórar sólir. Raunar er um að ræða tvö tvístirni, A og B, en PH1 og B snúast um A. PH1 er að öllum líkindum gasstjarna í líkingu við Neptúnus eða Úranus.

Áhugamenn eru óþreytandi við að fara yfir gögn úr Kepler-sjónauka NASA og benda vísindamönnum á athyglisverð frávik en þetta er í fyrsta sinn sem það starf skilar svo merkum niðurstöðum.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×