Erlent

Friðarviðræður hafnar í Ósló

Sendinefnd Kólumbíustjórnar á flugvellinum í Bógóta.
Sendinefnd Kólumbíustjórnar á flugvellinum í Bógóta. nordicphotos/AFP
Friðarviðræður milli skæruliðasveitanna FARC og Kólumbíustjórnar hófust í Ósló í gær. Þetta er í annað sinn sem reynt er að semja af alvöru um frið við skæruliðana, sem áratugum saman hafa barist við stjórnarherinn í Kólumbíu.

Skæruliðarnir hafa verið með stórt svæði í Kólumbíu á sínu valdi, hafa tekið gísla og tekið þátt í fíkniefnasmygli í fjáröflunarskyni, en segja baráttu sína hafa miðað að því að koma á fót sósíalisma í Kólumbíu.

Viðræðurnar áttu reyndar að hefjast á mánudag, en drógust vegna deilna um túlk. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×