Skotar fá að kjósa um sjálfstæði 2014 15. október 2012 23:30 Alex Salmond og David Cameron. mynd/AP
Bretland, apForsætisráðherra Bretlands, David Cameron, og æðsti ráðherra Skotlands, Alex Salmond, hafa skrifað undir samkomulag um þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Samkomulagið var undirritað í Edinborg í gær en samningaviðræður hafa staðið yfir mánuðum saman. Samkvæmt því munu Skotar fá að kjósa um það hvort Skotland eigi að verða sjálfstætt ríki eða ekki. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram haustið 2014. Bresk stjórnvöld munu veita skoska þinginu völd til þess að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna, en breska ríkisstjórnin ber ábyrgð á stjórnskipunarmálum. Breska ríkisstjórnin og ríkisstjórn Skota munu þurfa að vinna saman með bestu hagsmuni almennings í Skotlandi í huga, sama hver niðurstaða kosninganna verður, að því er segir í samkomulaginu. David Cameron sagði við fréttamenn í gær að hans meginmarkmið væri að halda Bretlandi sameinuðu. „Ég hef alltaf viljað sýna skoskum almenningi virðingu. Almenningur kaus flokk sem vildi halda þjóðaratkvæðagreiðslu, ég hef gert það mögulegt og séð til þess að kosningarnar verði löglegar og sanngjarnar," sagði hann. Hann sagðist vera sannfærður um að betra sé fyrir Skota að vera áfram hluti af Bretlandi, en jafnframt að það væri betra fyrir Bretland í heild. Alex Salmond sagðist hins vegar fullviss um að Skotar myndu kjósa að verða sjálfstætt ríki. - þeb
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Sjá meira