Aldrei fleiri nauðganir tilkynntar í Ósló ÞJ skrifar 13. október 2012 00:30 Aldrei hafa fleiri nauðganir verið tilkynntar í Ósló en í fyrra. Ný skýrsla sýnir að meira er um að nauðganir eigi sér stað utan dyra í skjóli nætur. NordicPhotos/Getty
Tilkynningum um nauðganir og nauðgunartilraunir hefur fjölgað stöðugt hjá lögreglunni í Ósló síðasta áratug og þær hafa aldrei verið fleiri en einmitt í fyrra. Dagbladet segir frá þessu á vef sínum. 213 nauðganir voru tilkynntar í Ósló í fyrra, sem er veruleg aukning frá árinu 2010 þegar 162 nauðganir voru tilkynntar. Séu nauðgunartilraunir taldar með, eru tölurnar 256 fyrir 2011 og 189 fyrir 2010. Í skýrslunni kemur fram að 58 prósent nauðgara hafi verið ókunnug þolendum, en það er hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr. Þá er tilfellunum skipt upp eftir kringumstæðum og kemur þar í ljós að rúmur þriðjungur nauðgana og tilrauna til nauðgana er framinn í tengslum við samkomur fólks, samkvæmi eða skemmtanalíf. Tæpur fimmtungur nauðgana er framinn af ættingja eða fjölskyldumeðlim og fimmtán prósent nauðgana eru svokallaðar árásarnauðganir þar sem ráðist er á þolanda á almannafæri, yfirleitt í skjóli nætur, en í fyrra átti tæpur fjórðungur nauðgana og tilrauna til nauðgana, sér stað utandyra. Athygli vekur einnig að þó að flestir sem kærðir eru fyrir nauðgun séu norskir ríkisborgarar, eru nær tveir þriðju af öðrum uppruna en norskum. Rúm tuttugu prósent eru frá Afríku, þrjátíu prósent frá Asíu eða Mið-Austurlöndum og tólf prósent af evrópskum uppruna.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira