Árásin vekur hörð viðbrögð GB skrifar 11. október 2012 00:00 Talibönum voru ekki vandaðar kveðjurnar víða í Pakistan í gær.nordicphotos/AFP
Skotárás talibana á skólastúlkur í Swat-dalnum í Pakistan hefur vakið hörð viðbrögð. Efnt hefur verið til mótmælafunda og mörgum skólum var lokað í mótmælaskyni í gær. Þá hefur æðsti herforingi landsins, Ashfaq Parvez Kayani, sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem hann fordæmir árásina. Sjaldgæft er að her landsins sendi frá sér yfirlýsingar af þessu tagi. „Með því að ráðast á Malala sýna hryðjuverkamennirnir að þeir hafa ekki áttað sig á því að hún er ekki aðeins einstaklingur, heldur tákn um hugrekki og von sem sýnir fram á gildi þeirra miklu fórna sem íbúar í Swat-dalnum og víðar í ríkinu hafa fært með því að losa dalinn úr höndum hryðjuverkamanna," sagði Kayani herforingi. Árásin var gerð á skólabíl fyrir utan skóla í bænum Mingora á þriðjudag. Talibani réðst inn í bílinn og skaut á tvær stúlkur. Önnur þeirra er Malala Yousoufzai, fjórtán ára stúlka sem þekkt er fyrir ótrauða baráttu sína fyrir skólagöngu stúlkna og gegn kúgun talibana. Læknar sögðu vel hafa tekist til við að fjarlægja byssukúlu úr hálsi hennar, en stúlkurnar eru báðar á sjúkrahúsi og báðum er hugað líf.
Tengdar fréttir Skotin fyrir að gagnrýna Skólavagn fullur af börnum var í þann mund að leggja af stað frá skólalóð í bænum Mingora í austanverðu Pakistan í gær þegar maður nokkur kom að bílnum og spurði eftir stúlku, sem heitir Malala Yousoufzai. Önnur stúlka benti á hana, en þá dró maðurinn upp byssu og skaut þær báðar. 10. október 2012 00:01 Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Sjá meira
Skotin fyrir að gagnrýna Skólavagn fullur af börnum var í þann mund að leggja af stað frá skólalóð í bænum Mingora í austanverðu Pakistan í gær þegar maður nokkur kom að bílnum og spurði eftir stúlku, sem heitir Malala Yousoufzai. Önnur stúlka benti á hana, en þá dró maðurinn upp byssu og skaut þær báðar. 10. október 2012 00:01