Blatter: Aldrei séð annað eins í minni tíð 10. október 2012 06:00 Joseph Blatter hefur verið umdeildur í sinni forsetatíð hjá FIFA en hann lofaði mjög starf KSÍ í gær. fréttablaðið/pjetur
Joseph Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins [FIFA], hefur verið staddur hér á landi síðustu daga til að kynna sér íslenska knattspyrnu og uppbyggingu íþróttarinnar hér á landi. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum í gær þar sem hann lofaði mjög hvernig staðið hafi verið að knattspyrnunni hér á landi. „Ég var uppnuminn af kynningu Sigurðar Ragnar Eyjólfssonar, fræðslustjóra KSÍ, um íslenska knattspyrnu," sagði hann. „Ég hef séð að það ríkir hér á landi mikill vilji og ákveðni í hinum ýmsu verkefnum sem nú eru í gangi." Blatter sótti einnig æfingar hjá yngri flokkum HK og Breiðabliks og fannst mikið til koma. „Þar sá ég í verki þann metnað sem ríkir í starfinu. Í öllum flokkum eru menntaðir þjálfarar og er það afar mikilvægt. Þarna voru ung börn, allt niður í 3-5 ára gömul, að æfa með bolta á yfirbyggðum knattspyrnuvelli. Það fannst mér virkilega gaman að sjá." Hann segir þetta ekki síður merkilegt í því ljósi hversu fámenn íslenska þjóðin er. „Ég hóf störf hjá FIFA fyrir 37 árum og þá í þróunarstarfi sambandsins. Á þessum tíma hef ég aldrei séð jafn gott og skilvirkt starf í jafn litlu landi. Mér fannst mikið til kynningar Sigurðar Ragnars koma," ítrekaði hann. „Ef starfið heldur áfram af sama metnaði þá leikur enginn vafi á því í mínum huga að það mun skila árangri íslenskrar knattspyrnu á alþjóðlegum vettvangi." Hann minntist á leiki íslenska kvennalandsliðsins gegn Úkraínu í umspili um sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð. „Ég óska þeim innilega góðs gengis. Ég myndi líka óska Úkraínu hins sama – en ég er núna staddur á Íslandi," sagði hann í léttum dúr.
Fótbolti Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Sjá meira