Þjálfari Noregs: Ég sé þær örugglega aftur í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 20. september 2012 06:00 Katrín Ómarsdóttir er hér í baráttu við hina öflugu Sólveigu Gulbrandsen sem var í lykilhlutverki með norska liðinu í gær. nordic photos/aFP
Íslenska kvennalandsliðið þarf að fara sömu leið inn á Evrópumótið og fyrir fjórum árum eftir 1-2 tap á móti Noregi í Osló í gærkvöldi. Fótboltinn getur oft verið ósanngjarn og það fengu íslensku stelpurnar að kynnast á Ullevaal leikvanginum. Íslenska liðið var lengstum með öll völd á vellinum á meðan heimastúlkur lögðust í skotgrafirnar og treystu á föst leikatriði. Jöfnunarmarkið lét ekki sjá sig en þrátt fyrir allt svekkelsið í leikslok geta stelpurnar okkar verið stoltar af leik sínum í gær. Allt breyttist á 39. mínútu leiksins þegar Maren Mjelde, fyrirliði norska liðsins, fiskaði ódýra aukaspyrnu og norska liðið fékk stórhættulegt færi á silfurfati hjá þýska dómaranum. Mjelde skoraði í framhaldinu af stuttu færi eftir flotta sendingu fyrir markið frá Solveig Gulbrandsen. Markið stuðaði greinilega íslensku stelpurnar mikið og það tók norska liðið aðeins tæpar þrjár mínútur að bæta við öðru marki. Elise Thorsnes skoraði þá með frábæru skoti. „Síðustu fimm mínúturnar í fyrri hálfleik voru ekki góðar og við missum einbeitinguna tvisvar sinnum og er refsað í bæði skiptin. Góð lið gera það," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari. Honum tókst þó að rífa íslensku stelpurnar upp eftir þetta áfall. „Við ræddum um að við þyrftum að spýta í lófana og spila boltanum meira. Það var of mikið af löngum sendingum fram völlinn í fyrri hálfeik. Við ætluðum að sýna karakter í seinni hálfleik og sýna hvað við gætum. Mér fannst liðið bregðast ótrúlega vel við því. Við uppskárum fallegt mark og við hefðum getað skorað fleiri. Ég var alltaf að bíða eftir því að við myndum jafna leikinn," sagði Sigurður Ragnar. Íslenska liðið tók öll völd á vellinum í seinni hálfleiknum og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði frábært mark á 65. mínútu eftir stórkostlega sókn. Katrín Ómarsdóttir, besti leikmaður íslenska liðsins, bjó á endanum til skotfærið með sniðugri snertingu og Margrét Lára afgreiddi boltann í bláhornið frá vítateigslínunni. Íslenska liðið var þar með komið aftur inn í leikinn en gekk áfram illa að finna leiðir í gegnum þéttan varnarleik norska liðsins þrátt fyrir að vera áfram miklu meira með boltann. Íslenska liðið fékk nokkur ágæt skotfæri fyrir utan teig á lokamínútunum en þetta eina gullna tækifæri kom aldrei og því urðu stelpurnar að sætta við sárgrætilegt tap. Eli Landsem, þjálfari norska landsliðsins hrósaði líka íslenska liðinu í leikslok og viðurkenndi að sínar stelpur hafi verið heppnar í leiknum. „Þetta var mjög erfiður leikur því Ísland er með gott lið. Við erum mjög ánægðar og um leið heppnar að hafa unnið þennan leik. Leikskipulagið okkar gekk fullkomlega upp," sagði Landsem en hún var farin að hugsa að breytingum í lok fyrri hálfleiks þegar allt stefndi í 0-0 stöðu í hálfleik. „Það var mikilvægt að fá þessi mörk undir lok fyrri hálfleiksins. Við vorum mjög heppnar því ég var þegar farin að hugsa um hvernig ég þyrfti að breyta liðinu mínu til að fá mörk því við urðum að vinna leikinn. Eftir að við fengum þessi mörk þá gátum við haldið áfram með okkar skipulag," sagði Landsem en hvernig heldur hún að íslenska liðinu gangi í umspilinu. „Ég er viss um að ég sé íslenska liðið á EM í Svíþjóð næsta sumar," sagði norski þjálfarinn og það er vonandi að hún hafi rétt fyrir sér.
Fótbolti Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Adam Ægir mættur til KA Íslenski boltinn „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Fleiri fréttir Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum Sjá meira