Erlent

Bærinn íhugar skaðabótamál

Á fésbókinni er nú hvatt til þess að ekki verði átt frekar við málverkið eftir misheppnaðar úrbætur Giménez.nordic
Á fésbókinni er nú hvatt til þess að ekki verði átt frekar við málverkið eftir misheppnaðar úrbætur Giménez.nordic photos/afp
Bæjaryfirvöld í bænum Borja á Spáni er nokkur vandi á höndum eftir að áttatíu og eins árs kona, Cecilia Giménez að nafni, ætlaði að endurbæta aldargamalt málverk af Jesú Kristi á vegg kirkju einnar í bænum með misheppnuðum árangri.

Eins og Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag líkist verkið málverki af apa eftir þessar misheppnuðu endurbætur.

Juan María Ojeda, formaður menningarráðs bæjarins, segir bæjaryfirvöld vera að hugleiða að fara með málið fyrir dómstóla sem þeim þykir þó ekki manneskjuleg framganga þar sem Giménez býr við erfiðar aðstæður. Hún er með 60 ára gamlan son sinn á framfæri en hann er fatlaður. Þar að auki glímir hún við streitu og kvíða frá því að málið komst í hámæli í spænskum fjölmiðlum. Dagblaðið El Mundo greinir frá því að hún liggi að mestu fyrir og nærist lítið.

Giménez hefur sagt það í sjónvarpsviðtali í spænska ríkissjónvarpinu að prestur kirkjunnar sem og mörg sóknarbörn hafi vitað af þessi verki hennar. „Ég gerði þetta ekkert fyrir luktum dyrum, hálfur bærinn sá til mín," segir hún þar.

En viðgerðir hennar hafa ekki aðeins vakið vond viðbrögð því á fésbókinni er búið að stofna aðdáendasíðu henni til heiðurs. Þar er meðal annars hvatt til þess að málverkið verði látið vera eins og hún skildi við það. Líklegast verður þeim þó ekki að ósk sinni því nú eru sérfræðingar mættir í kirkjuna til að kanna hvernig koma megi málverkinu sem mest í fyrra horf.- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×