Aukið eftirlit með verði og ráðgjöf banka 21. ágúst 2012 05:30 Hægt verður að sekta banka gefi þeir slæm ráð um lán. nordicphotos/AFP
Umboðsmaður neytenda í Danmörku á í framtíðinni að fá möguleika til að fylgjast með verðstefnu bankanna. Þar með munu bankar fara undir sama hatt og seljendur notaðra bíla, útvarpa, reiðhjóla og alls mögulegs annars. Á fréttavef Politiken segir að þetta sé liður í víðtækri áætlun danskra stjórnvalda um aukið gagnsæi í neytendamálum. Þar til árið 2002 fylgdist umboðsmaður neytenda í Danmörku með verðupplýsingum bankanna en margra ára deilu þáverandi umboðsmanns og lánastofnana lauk með því að danska þingið fól fjármálaeftirlitinu verkefnið. Það hefur hins vegar um árabil sætt gagnrýni fyrir að gera ekki nóg. Verkefninu verður framvegis sinnt af bæði umboðsmanni neytenda og fjármálaeftirlitinu. Við nýlega könnun danska fjármálaeftirlitsins á þrjátíu bönkum komu í ljós villur í verðupplýsingum 29 banka. Sumir voru kærðir til lögreglu en aðrir fengu áminningu og sektir, að því er kemur fram á vef Politiken. Þar er jafnframt greint frá því að hægt verði að sekta banka fyrir að gefa viðskiptavinum slæm ráð um lán. Viðskiptavinir eiga ekki lengur að geta keypt húsnæði sem er eiginlega of dýrt með því að fjármagna það með ódýrum en jafnframt áhættusömum lánum.- ibs
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira