Kastaði flösku að hlaupurunum 7. ágúst 2012 06:00 Flaskan lenti fyrir aftan jamaíska hlauparann Yohan Blake, en hann varð annar í hlaupinu. fréttablaðið/ap
Maður kastaði flösku inn á Ólympíuvöllinn í London á sunnudag, í þann mund sem keppendur í úrslitum 100 metra hlaups karla voru að taka af stað. Um bjórflösku úr plasti var að ræða og sakaði hún engan. Maðurinn heitir Ashley Gill-Webb og er 34 ára gamall Breti. Lögregla segir að hann hafi hrópað ókvæðisorð að hlaupurunum áður en hann grýtti flöskunni inn á völlinn. Bronsverðlaunahafinn í júdó, hollenska konan Edith Bosch, varð vitni að atvikinu. Hún brást ókvæða við og sló hann, en sagði í samtali við hollenska sjónvarpsstöð að vonbrigði og reiði hefðu litað dómgreind hennar. ?Ég hafði séð hann ganga um aðeins fyrr og sagði sessunautum mínum að hann væri furðulegur. Síðan kastaði hann flöskunni og í geðshræringu sló ég hann á bakið með flötum lófa.? Sebastian Coe, formaður skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í London, sagði skáldlegt réttlæti fólgið í barsmíðum Bosch, en dró svo í land og sagðist ekki hafa verið að hvetja til þess að menn tækju lögin í eigin hendur. Usain Bolt frá Jamaíku, sem sigraði hlaupið, sagðist ekki hafa tekið eftir atvikinu. Bandaríski hlauparinn Justin Gatlin sagði hins vegar að sér hefði brugðið við flöskuna. Atvikið hefði þó ekki haft áhrif á úrslitin, en Gatlin varð þriðji í hlaupinu.- kóp
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Fleiri fréttir Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Sjá meira