Assad forseti hvetur herlið sitt til dáða 2. ágúst 2012 00:15 Komnir með skriðdreka sem þeir hirtu af stjórnarhernum. nordicphotos/AFP
Segir örlög Sýrlands ráðast í orrustunni um Aleppo. Amnesty International fordæmir framferði stjórnarhersins og lýsir mannréttindabrotum hans í nýrri skýrslu. Öryggisráð S.Þ. hvatt til að draga Sýrland fyrir stríðsglæpadómstól. Bashar al Assad Sýrlandsforseti segir að örlög sýrlensku þjóðarinnar ráðist í orrustunni um Aleppo. Hann hefur ekkert tjáð sig opinberlega í hálfan mánuð, en sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvetur her sinn til dáða. Herinn hefur síðustu daga haldið uppi hörðum árásum á Aleppo, fjölmennustu borg landsins, sem uppreisnarmenn höfðu að stórum hluta náð á sitt vald. Sausan Gaulage, talskona Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi, segir að sýrlenskar herþotur hafi tekið þátt í árásunum á uppreisnarmenn. „Í gær urðu eftirlitsmenn okkar í fyrsta sinn vitni að skothríð frá herþotum. Við höfum nú líka fengið staðfestingu á því að stjórnarandstaðan er komin með þungavopn, þar á meðal skriðdreka,“ hefur fréttastofan AP eftir henni. Sameinuðu þjóðirnar hafa miklar áhyggjur af örlögum almennings í borginni, sem verður fyrir sprengjuárásum stjórnarhersins. Þúsundir manna flýja borgina á degi hverjum en margir komast ekki burt og ástandið í borginni versnar dag frá degi: „Fólk skortir mat, eldsneyti, vatn og gas,“ segir Gaulage. Mannréttindasamtökin Amnesty International sendu í gær frá sér skýrslu, þar sem lýst er mannréttindabrotum stjórnarhersins í Aleppo. Þar er fullyrt að bæði stjórnarherinn og alræmdar hrottasveitir á vegum stjórnarinnar hafi ítrekað beitt skotvopnum á friðsama mótmælendur og drepið og sært bæði þátttakendur í mótmælum og aðra nærstadda, þar á meðal börn. Einnig elti þeir uppi hina særðu og líka lækna og heilbrigðisstarfsfólk sem reynt hefur að líkna þeim. Þá hafi margir þeirra sem handteknir eru verið pyntaðir og þeim ógnað með ýmsum hætti. „Ekki kemur á óvart að lömun alþjóðasamfélagsins undanfarna 18 mánuði hefur gert það að verkum að Sýrlandsstjórn telur sig geta haldið áfram brotum sínum, þar á meðal stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni, án ótta við refsingu,“ segir Donatello Rovera hjá Amnesty International. „Ástandinu í Sýrlandi ætti tafarlaust að vísa til Alþjóðlega sakadómstólsins.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira