Aðeins beitt gegn útlendingum 24. júlí 2012 00:00 Sýrlenskir uppreisnarmenn Staða þeirra virðist hafa styrkst mjög síðustu daga. nordicphotos/AFP
Sýrlandsstjórn segir að efnavopn, sem hún hefur í fórum sínum, yrðu eingöngu notuð gegn innrásarliði. Þeim yrði aldrei beitt gegn eigin landsmönnum. „Öll þessi vopn eru geymd undir eftirliti og í beinni umsjón sýrlenska hersins og verða aldrei notuð nema Sýrland verði fyrir árás að utan,“ sagði Jihad Makdissi, talsmaður utanríkisráðuneytis Sýrlands. „Engin efna- eða lífefnavopn verða nokkurn tímann notuð, og ég endurtek, verða aldrei notuð, í átökunum í Sýrlandi, hvernig sem þau þróast,“ sagði hann. Þetta er í fyrsta sinn sem Sýrlandsstjórn viðurkennir að vera með efnavopn, en undanfarna daga hefur vaxandi þrýstingur verið á stjórnina frá leiðtogum annarra landa, sem eru farnir að krefjast þess að hún segi af sér. Talið er að stjórnvöld hafi í fórum sínum sinnepsgas og efni sem hafa áhrif á taugastarfsemi. Arababandalagið hefur boðið Bashar al Assad Sýrlandsforseta og fjölskyldu hans örugga útleið ef hann kýs að segja af sér. Assad er giftur og á þrjú ung börn. „Þessi ósk kemur frá öllum arabaríkjunum: Dragðu þig í hlé,“ sagði Hamid bin Jassim al Thani, forsætisráðherra Katars, eftir fund utanríkisráðherra ríkja Arababandalagsins. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að notkun á þessari tegund vopna væri óásættanleg. „Sýrlenska stjórnin hefur skyldur gagnvart heiminum, og fyrst og fremst gagnvart eigin borgurum,“ sagði Victoria Nuland. Hún sagði einnig að Bandaríkjastjórn og bandamenn hennar fylgdust með ástandinu og hefðu komið þeim skilaboðum til bæði stjórnvalda og uppreisnarmanna að forðast notkun óhefðbundinna vopna. Harðir bardagar hafa geisað síðustu daga milli uppreisnarmanna og stjórnarhersins í Aleppo og Damaskus, tveimur stærstu borgum landsins. - gb/- þeb
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Innlent Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Fleiri fréttir „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Sjá meira