Setja eiðstafinn ekki fyrir sig 2. maí 2012 01:00 Ætlar að berjast áfram fyrir lýðræðisumbótum í landi herforingjastjórnarinnar.nordicphotos/AFP NordicPhotos/AFP
Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, segir að hún og stuðningsmenn hennar ætli að mæta til þings á miðvikudag og sverja embættiseið, þrátt fyrir að þau séu ósátt við orðalag eiðstafsins. Þau vilja komast hjá því að sverja eið, sem skuldbindur þau til að „verja stjórnarskrána“, enda hafa þau barist fyrir breytingum á henni og voru kosin út á það í þingkosningunum 1. apríl síðastliðinn. Þess í stað hafa þau viljað fá eiðstafnum breytt þannig að þau skuldbindi sig til þess að „virða stjórnarskrána“. Þótt þessi breyting hafi ekki náðst fram ætlar Suu Kyi að taka sæti á þingi vegna þess að almenningur er orðinn óþreyjufullur og vill ekki bíða lengur eftir því að stjórnarandstæðingar geti látið rödd sína heyrast á þingi. „Við erum ekki að gefa neitt eftir heldur fara að vilja fólksins,“ segir Suu Kyi. „Stjórnmál snúast um málamiðlanir.“ Hún ætlar áfram að berjast fyrir þeim lýðræðisumbótum sem hún hefur barist fyrir áratugum saman. Flokkur hennar vann stórsigur í þingkosningum árið 1990, en herforingjastjórnin tók ekki mark á þeim kosningum. Suu Kyi hefur verið í stofufangelsi megnið af tímanum síðan, með nokkrum mislöngum hléum. Hún var látin laus á síðasta ári eftir að herforingjastjórnin byrjaði að slaka á klónni.- gb
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Fleiri fréttir Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Sjá meira