Erlent

Frídagarnir milljarða virði

Örtröð á Heathrow Fjölmargir Bretar nota frídagana til að ferðast.
Örtröð á Heathrow Fjölmargir Bretar nota frídagana til að ferðast.
Þjóðarframleiðsla í Bretlandi myndi aukast um nítján milljarða punda á ári ef lögbundnir frídagar yrðu afnumdir. Það jafngildir um 3.800 milljörðum íslenskra króna.

Þetta kemur fram í úttekt hugveitunnar Centre for Economics and Business Research, en frídagar í Bretlandi verða níu í ár, einum fleiri en venjulega vegna krýningarafmælis drottningar í júní.

Í úttektinni er þó ekki gengið svo langt að mæla með afnámi frídaga, enda eru slíkir dagar fleiri í nágrannalöndunum. Ráðlegt þykir hins vegar að dreifa þeim betur því fimm frídaganna eru frá apríl fram í júní. – þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×