Erlent

Prenta súkkulaði í þrívídd

Nýr súkkulaðiprentari gæti umbylt súkkulaðiframleiðslu þegar hann kemur á markað seinni partinn í apríl, segir í frétt BBC. Hönnuðir tækisins treysta á að eftirspurnin verði mikil þó páskarnir verði liðnir með tilheyrandi súkkulaðiáti.

Tækið virkar eins og aðrir þrívíddarprentarar, sem eru meðal annars notaðir til að búa til gervibein og skartgripi. Í stað þess að nota plast, við eða málm prentar það hins vegar skúlptúra úr gæðasúkkulaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×