Erlent

Vilja leyfa aðra fána en danska

Frjálslyndir segja það tjáningarfrelsi að fólk megi flagga fánum annarra þjóða.
Frjálslyndir segja það tjáningarfrelsi að fólk megi flagga fánum annarra þjóða. nordicphotos/afp
Radikale venstre, flokkur frjálslyndra í Danmörku, telur tímabært að lyfta banni við því að flagga öðrum þjóðfánum en þeim danska.

„Fánar eru bara tákn,“ sagði Zenia Stampe, þingmaður flokksins við TV2 í Danmörku. Hún sagðist elska Danmörku og danska þjóðfánann, en málið snérist um tjáningarfrelsi.

Samkvæmt dönskum lögum á aðeins að flagga danska fánanum þar, með undantekningum þó. Flagga má fánum Norðurlandaþjóðanna, Evrópusambandsfánanum og fána Sameinuðu þjóðanna án þess að fá sérstakt leyfi. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×