Erlent

Sex ákærðir fyrir mansal

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Sex menn hafa verið ákærðir fyrir aðild sína að mansalshring í Svíþjóð.

Tíu menn frá Litháen eru taldir hafa staðið að baki mansalinu. Þeir gerðu út að minnsta kosti fimmtán konur frá sama landi, sem þeir fengu til Svíþjóðar á þeim forsendum að þær fengju mjög vel borgað fyrir að vinna sem vændiskonur þar. Þeim var hins vegar haldið nauðugum og fengu aðeins brot af þeim peningum sem þeim var lofað. Ein fékk ekkert borgað. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×