Létu tíu gísla lausa eftir tólf ár í haldi 4. apríl 2012 00:30 Tveir gíslanna, sem látnir voru lausir í gær, ásamt hjúkrunarfræðingum. Fréttablaðið/AP
Kólumbísku skæruliðasamtökin FARC létu í gær lausa tíu gísla sem hafa verið í haldi þeirra í tólf til fjórtán ár. Mjög er nú þrengt að skæruliðunum, sem nýlega hétu því að hætta gíslatökum. Enn eru þó nokkur hundruð gísla í haldi þeirra. Tíu kólumbískir lögreglumenn og hermenn, sem hafa verið gíslar skæruliðasamtakanna FARC í tólf til fjórtán ár, fengu frelsið í gær. Miklir fagnaðarfundir urðu þegar ættingjar þeirra tóku á móti þeim. Þyrla hafði verið send til að ná í þá á ótilgreindan stað í frumskóginum. Ættingjar og ástvinir tóku síðan á móti þeim í höfuðborginni Bogota, þar sem þeir voru jafnframt sendir í læknisskoðun. „Ég öskraði. Ég hoppaði upp og niður," sagði Olivia Solarte, móðir eins gíslanna, 41 árs gamals lögreglumanns sem hefur verið í haldi síðan í júlí árið 1999. Enn eru að minnsta kosti 400 gíslar í haldi samtakanna, sem nýlega gáfu loforð um að þau væru hætt að taka gísla í tekjuöflunarskyni. Samtökin fullyrða að mennirnir tíu, sem látnir voru lausir í gær, séu síðustu lögreglu- og hermennirnir sem enn voru í haldi þeirra. Hinir séu allt almennir borgarar. Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, fagnaði lausn gíslanna úr haldi, en sagði hana ekki duga til. Hún væri „skref í rétta átt, mjög mikilvægt skref," en samt ekki upphaf friðarviðræðna. Hann vill fá ótvíræða staðfestingu á því að samtökin, sem hófu vopnaða baráttu árið 1964, hafi í reynd hætt öllum gíslatökum. „Þegar stjórnvöld telja næg skilyrði og tryggingar vera fyrir hendi til þess að hafist geti ferli sem bindur enda á átökin, þá mun þjóðin vita af því," sagði Santos, sem hefur tekið af mikilli hörku á skæruliðasamtökunum frá því hann var varnarmálaráðherra á árunum 2006 til 2009 og síðan áfram eftir að hann tók við embætti forseta árið 2010. Skæruliðasamtökin FARC voru upphaflega byltingarsamtök marx-lenínista sem hugðust ná völdum í landinu, en hafa á seinni árum haldið sig að mestu til hlés inni á stóru landsvæði, sem þau hafa náð á sitt vald. Gíslatökur hafa þau þó haldið áfram að stunda, en einkum í fjáröflunarskyni því þau hafa heimtað rausnarlegt lausnargjald fyrir gísla sína. Helsta tekjulind þeirra hefur annars verið kókaínframleiðsla. Liðsmenn þeirra eru taldir vera tíu til fimmtán þúsund, en fylgi þeirra meðal þjóðarinnar hefur dvínað jafnt og þétt. Undanfarna áratugi hafa tvisvar verið gerðar tilraunir til friðarviðræðna milli FARC og stjórnvalda í Kólumbíu, en upp úr þeim slitnaði í bæði skiptin.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Sjá meira