Erlent

Rak stjórnlaust í sólarhring

Farþegum í Azamara Quest létti mjög þegar skipið lagðist að bryggju. nordicphotos/AFP
Farþegum í Azamara Quest létti mjög þegar skipið lagðist að bryggju. nordicphotos/AFP
Skemmtiferðaskipið Azamara Quest komst til hafnar í Malasíu í gær meira en sólarhring eftir að eldur kom upp í vélarými. Eldurinn kom upp á föstudagskvöld og rak skipið stjórnlaust um hafið í sólarhring með þúsund manns um borð. Fimm manns úr áhöfninni slösuðust.

Þetta er þriðja óhappið sem kemur fyrir stórt skemmtiferðaskip á þessu ári. Fyrst strandaði skemmtiferðaskipið Costa Concordia við strönd Ítalíu í janúar. Síðan kom upp eldur í skipinu Costa Allegra á Indlandshafi í febrúar og rak það skip stjórnlaust í þrjá sólarhringa.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×