Erlent

Morðin ekki sýnd á skjánum

Mohamed Benalel Merah
Mohamed Benalel Merah
Sjónvarpsstöðin Al Jazeera tilkynnti í gær að hún ætlaði ekki að sýna myndband sem franski fjöldamorðinginn Mohamed Merah hafði tekið af ódæðum sínum og sent stöðinni.

Forsvarsmenn Al Jazeera tóku enn fremur fram að enginn fengi afrit af upptökunni en beiðnir höfðu borist um slíkt.

Merah myrti sjö manns í þremur skotárásum en var sjálfur drepinn af sérsveit frönsku lögreglunnar í síðustu viku. Mohamed Benalel Merah, faðir morðingjans, íhugar nú að leggja fram kæru á hendur lögreglunni og segist ekki skilja hvers vegna sonur sinn var ekki handtekinn.

„Þeir hefðu til dæmis geta notað gas og náð honum eins og barni,“ sagði Merah eldri í sjónvarpsviðtali í gær.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×