Erlent

Skipaður fiskimálaráðherra

Jacob Westergaard var skipaður fiskimálaráðherra í gær.
Jacob Westergaard var skipaður fiskimálaráðherra í gær.
Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, hefur skipað Jacob Westergaard í embætti fiskimálaráðherra. Johannesen leysti Jákup Mikkelsen úr embættinu því að hann þótti of tengdur aðilum í sjávarútvegi. Til dæmis er mágur hans umsvifamikill útgerðarmaður.

Johannesen hafði sjálfur þurft að afgreiða einstök sjávarútvegsmál undanfarið vegna vanhæfi Mikkelsens. Mikkelsen var kjörinn þingflokksformaður Fólkaflokksins í gær.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×