Grikkir meta tjónið og hefja hreinsun 14. febrúar 2012 07:00 Þetta sögufræga kvikmyndahús er eitt þeirra fjölmörgu húsa sem urðu eldinum að bráð í fyrrinótt. Nordicphotos/AFP
Hátt í hundrað húsa eyðilögðust í óeirðum í Aþenu í fyrrinótt. Fjármálaráðherrar evruríkjanna fagna nýjum niðurskurðaráformum grísku stjórnarinnar, sem fyrir sitt leyti hefur boðað til kosninga í apríl, að fenginni fjárhagsaðstoð. Þrátt fyrir óeirðir í miðborg Aþenu samþykkti gríska þingið í fyrrakvöld niðurskurðaráform, sem eiga að tryggja ríkissjóðnum fjárhagsaðstoð upp á 130 milljarða evra frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Reiknað er með því að leiðtogafundur Evrópusambandsins í byrjun mars samþykki fjárveitinguna, rétt í tæka tíð svo gríska ríkið geti borgað næstu stóru afborganirnar af lánum sínum þann 20. mars. Gríska stjórnin hefur boðað til kosninga í apríl, þegar þessi hrina er um garð gengin og afborganirnar greiddar. „Þessi stjórn á einn og hálfan mánuð eftir,“ sagði Pantelis Kapsis, talsmaður stjórnarinnar. „Við klárum þetta í mars og svo verður kosið í apríl.“ Afgreiðsla gríska þingsins á sunnudagskvöld reyndist þingmönnum erfið og búist var við uppstokkun í stjórninni í gær. Evran tók svolítinn kipp upp á við á mörkuðum, sem virðast því hafa einhverja trú á að þessar nýjustu ráðstafanir muni duga um sinn til að halda efnahag Grikklands á floti. Margir hafa þó efasemdir um að niðurskurðaráformin og þessi nýja fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS dugi til að hjálpa Grikkjum út úr vandanum. Þeir muni fljótt þurfa á aðstoð aftur að halda. Landsframleiðsla hefur dregist saman, skatttekjur hafa dregist saman og fjárlagahallinn hefur haldið áfram að vaxa. Hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu hefur því ekki lækkað þrátt fyrir alla aðstoðina, og virðist ekki ætla að lækka þrátt fyrir þessa nýju aðstoð. „Þetta er eins og að pissa í buxurnar, því eftir hálft ár þurfa þeir aftur á aðstoð að halda,“ hefur danska dagblaðið Politiken eftir Tom T. Kristensen, Grikklandsfræðingi við Háskólann í Hróarskeldu. Fjárhagsaðstoðin er þó ekki endanlega í höfn. Fjármálaráðherrar evrusvæðisins þurfa að staðfesta að gríska ríkið hafi fullnægt skilyrðum þeirra. Þeir hittast í Brussel á miðvikudag. Samkomulag gríska ríkisins við evrópska einkabanka um eftirgjöf skulda bíður einnig endanlegrar afgreiðslu, en þarf að liggja fyrir nú í vikunni. Þá þarf þýska þingið að samþykkja sitt framlag til aðstoðarinnar, samkvæmt ákvæðum þýsku stjórnarskrárinnar.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Litlu nær um peningana í Fljótagöng Innlent Fleiri fréttir Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Sjá meira