Samkomulag á síðustu stundu 10. febrúar 2012 02:00 Fólk hefur fjölmennt út á götur til að mótmæla frekari niðurskurði. Fréttablaðið/AP
Leiðtogar grísku stjórnarflokkanna náðu í gær samkomulagi um sparnaðaraðgerðir eftir að erfiðar samningaviðræður höfðu dregist á langinn dag eftir dag í meira en viku. Daginn áður höfðu fulltrúar Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gefið stjórninni hálfs mánaðar frest til að finna hvar í ríkisrekstrinum finna megi þá 300 milljarða evra, sem Grikkjum var gert að skera niður til þess að fá frekari fjárhagsaðstoð. Niðurstaðan fékkst loks í gær, nokkrum klukkustundum fyrir fund fjármálaráðherra evruríkjanna, sem haldinn var í Brussel í gærkvöld. Það sem síðast strandaði á voru kröfur um að eftirlaun ríkisstarfsmanna yrðu lækkuð. Í nýja aðgerðapakkanum eru meðal annars skattahækkanir, launalækkanir og fækkun ríkisstarfsmanna, en allt þetta bætist ofan á erfiðan niðurskurð sem bitnað hefur illa á almenningi. Til þessa hefur niðurskurðurinn þó ekki dugað til að koma ríkisfjármálum Grikklands í betra horf. Þvert á móti virðist ástandið versna með hverjum mánuðinum. Grísk stjórnvöld þurfa fjárhagsaðstoð til þess að geta greitt næstu stóru afborganirnar af ríkisskuldum, hinn 20. næsta mánaðar. - gb
Mest lesið Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Innlent Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Innlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Innlent Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Innlent Rauðar viðvaranir víða í Evrópu vegna hitans Erlent Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Innlent Fleiri fréttir Óeirðir í Tyrklandi vegna umdeildrar skopmyndar Rauðar viðvaranir víða í Evrópu vegna hitans Segja niðurskurð á þróunaraðstoð hafa skelfilegar afleiðingar Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni „Stóra og fallega“ frumvarp repúblikana á tæpasta vaði Skæð hitabylgja velgir Evrópubúum undir uggum Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Skaut á slökkviliðsmenn úr launsátri Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Hitamet slegið á Spáni um helgina Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Twitter-morðinginn tekinn af lífi Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Sjá meira