Erlent

Sekur um að misnota vald

Baltazar GArzon
Baltazar GArzon
Spænski rannsóknardómarinn Baltasar Garzon hefur verið dæmdur fyrir að misnota völd sín.

Honum er bannað að stunda störf sem rannsóknardómari næstu ellefu árin. Garzon er 56 ára og verður því orðinn 67 ára þegar bannið fellur úr gildi. Hann varð frægur fyrir að gefa út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile.

Hæstiréttur Spánar komst að þeirri niðurstöðu í gær að Garzon hefði misnotað völd sín með því að heimila hleranir á samtölum fanga við lögmenn þeirra í tengslum við rannsókn á glæpum frá Franco-tímabilinu.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×