Skipstjóri segist hafa bjargað þúsundum eftir strandið 20. janúar 2012 05:30 Skipstjórinn umdeildi í lögreglufylgd á laugardaginn var. Hann var látinn laus úr varðhaldi á þriðjudag en er enn í stofufangelsi á heimili sínu. nordicphotos/AFP
Framferði skipstjóra skemmtiferðaskipsins Costa Concordia á strandstað síðastliðinn föstudag harðlega gagnrýnt. „Fyrirlitlegur heigulsháttur“ segir kennari við skóla strandgæslunnar. Alls 21 enn saknað eftir strandið. Francesco Schettino, skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir framferði sitt á strandstað fyrir viku. Hann er enn í stofufangelsi á heimili sínu, en segist hafa bjargað þúsundum manna. Nokkur hundruð manns voru enn um borð í skipinu þegar hann fór frá borði. Hann sinnti engu ítrekuðum og hvössum skipunum björgunarmanns um að koma sér aftur um borð til að taka þátt í björgunarstörfum. Þess í stað sagðist hann ætla að stjórna björgunaraðgerðum frá landi. „Þetta var fyrirlitlegur heigulsháttur,“ segir Craig Allen, kennari við skóla strandgæslunnar í London, sem fordæmir framferði skipstjórans. „Björgunarfólk í landi getur sinnt öllu samhæfingarstarfi sem á þarf að halda,“ segir Allen í viðtali við AP fréttastofuna. „Það þarf einhvern um borð til að tala við, til að gefa fyrirmæli til fólks sem er um borð og aðstoða farþegana við að fara frá borði og leiðbeina björgunarfólkinu.“ Schettino, sem er rúmlega fimmtugur og hefur starfað fyrir skemmtiferðaútgerðina Costa í rúman áratug, segist hafa verið að aðstoða fólk við að komast um borð í björgunarbát þegar hann datt ofan í bátinn og komst ekki aftur um borð í skipið. „Ég yfirgaf ekki skipið með hundrað manns um borð. Skipið hallaðist skyndilega og við köstuðumst út í sjóinn,“ heyrist á upptökum, sem ítalskir fjölmiðlar hafa birt. Fleiri yfirmenn voru um borð í sama björgunarbátnum og nokkrir farþegar hafa fullyrt að áhöfnin hafi meinað öðrum að fara um borð í þennan bát en yfirmönnum skipsins. Grunur vaknaði um að hann hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna þegar skipið strandaði. Hann féllst þó fúslega á að gangast undir blóðprufu til að afsanna það. Hann hefur áður siglt þessu skipi mjög nálægt eyjunni Giglio og segir að leiðin hafi verið fyrirfram ákveðin. Í ágúst síðastliðnum sigldi hann skipinu enn nær en í þessari síðustu ferð. Yfirvöld á Ítalíu nafngreindu í gær átta þeirra sem fórust, en þrjú lík í viðbót höfðu ekki verið nafngreind. Alls er 21 manns enn saknað.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Sjá meira