Aukinn hagvöxtur í forgangi í Evrópu 10. janúar 2012 09:15 Leiðtogarnir leggja áherslu á aukinn hagvöxt innan evrusvæðisins til að takast á við kreppuna. Fréttablaðið/ap
Aukinn hagvöxtur á evrusvæðinu er algjört forgangsmál til að komast út úr kreppunni. Þetta sögðu Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, á blaðamannafundi í Berlín í gær. Merkel hefur hingað til lagt mikla áherslu á aðhaldsaðgerðir þeirra ríkja sem eiga í mestum skuldavanda. Hún sagði hins vegar í gær að þó aðhaldsaðgerðir séu ein meginstoðin sem framtíð Evrópu hvíli á þá þurfi aðra stoð. Sú stoð sé hagvöxtur og atvinna. Þá lagði hún áherslu á að gengið yrði frá öðrum samningi um skuldir Grikkja á næstunni. Unnið er að því að klára vinnu við fjármálasáttmála sem leiðtogar allra ríkjanna nema Bretlands samþykktu í desember síðastliðnum. Búist er við því að mögulega verði hægt að skrifa undir sáttmálann í lok mánaðarins, en í síðasta lagi í byrjun mars. Þá er verið að skoða hvort hægt sé að koma björgunarsjóði evruríkjanna í gagnið í júlí, ári fyrr en áætlað var. Merkel mun svo funda með Christine Lagarde, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í kvöld. Nýr forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, er svo væntanlegur til Berlínar á morgun í sína fyrstu heimsókn. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna munu funda á Ítalíu í lok mánaðarins. - þeb
Mest lesið Sundlaugargestur handtekinn Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira