Glysrokkarinn Gary Glitter handtekinn 29. október 2012 07:00 Glitter stígur úr bíl og heldur heim á leið eftir yfirheyrslur hjá lögreglunni í gær. mynd/ap
Hneykslið í kringum fyrrverandi sjónvarpsmann BBC, Jimmy Savile, vatt upp á sig í gær þegar lögreglan handtók glysrokkarann og dæmda barnaníðinginn Gary Glitter. Hann sló í gegn með laginu Rock & Roll (Part 2) en féll í ónáð í heimalandi sínu Bretlandi eftir að hafa verið dæmdur fyrir barnaníð þar og Víetnam. Hann var leiddur í burt af heimili sínu í gær af lögreglu og fluttur til yfirheyrslu. Eftir að lögreglan hóf rannsókn á kynferðislegri misnotkun Jimmy Savile, sem stjórnaði hinum vinsælum þáttum Top of the Pops og Jim?ll Fix It, hafa hundruð mögulegra fórnarlamba hans gefið sig fram. Hann er grunaður um að hafa misnotað um þrjú hundruð börn og ungmenni á fjörutíu ára tímabili. Savile lést á síðasta ári, 84 ára gamall. Flest fórnarlömbin segja Savile hafa níðst á sér en einhver segja að Savile og fleiri aðilar hafi gert það. Glitter er sá fyrsti sem er handtekinn í tengslum við málið. Spurningar hafa vaknað um hvort BBC hafi vitað af kynferðisbrotum Savile en ekkert aðhafst í málinu. Savile mun hafa misnotað fórnarlömb sín bæði í bíl sínum og í búningsherbergi BBC. Eitt vitni segir Glitter hafa misnotað skólastúlku í búningsherberginu á áttunda áratugnum. BBC hefur sett af stað rannsókn vegna málsins sem nær yfir þau ár sem Savile starfaði þar. - fb
Mest lesið Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Fleiri fréttir Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Sjá meira