Örþrifaráð sem hafa vakið lítil viðbrögð 10. apríl 2012 01:00 Tíbetski útlaginn Jemphel Yeshi kveikti í sjálfum sér í Nýju-Delhí í síðasta mánuði til að mótmæla heimsókn Hu Jintao, forseta Kína, til Indlands.nordicphtos/AFP
Alls hafa 32 Tíbetar kveikt í sjálfum sér undanfarið ár til þess að mótmæla yfirráðum Kína. Þetta er ein stærsta bylgja sjálfsvíga af þessu tagi áratugum saman. Kínversk stjórnvöld hafa samt látið sér fátt um finnast og þrýstingur á þau frá almenningi eða stjórnvöldum í öðrum ríkjum hefur ekki tekið minnsta kipp. Almenningur í Kína hefur heldur ekki mikla samúð með sjálfstæðisbaráttu Tíbeta og fréttir af þessu hafa ekki verið áberandi í kínverskum fjölmiðlum. Flestir hafa sjálfsvígsmótmælendurnir verið ungir Búddamunkar. Þeir hafa kveikt í sér á markaðstorgum, aðalgötum og herbúðum eða á öðrum stöðum, sem tengjast kínverskum valdastofnunum. Sumir þeirra höfðu drukkið steinolíu áður en þeir kveiktu í sér til að framkalla sprengingu innan úr líkamanum. Flestar íkveikjurnar hafa verið í vestanverðu Kína, og þar af flestar í einu strjálbýlu héraði skammt frá landamærum Tíbets. Nú síðast kveiktu tveir rúmlega tvítugir búddamunkar í sjálfum sér á föstudaginn var. Í augum búddista er sjálfsíkveikja óeigingjörn og áhrifarík fórnarathöfn, oftast gerð til að vekja samúð með málstað trúarinnar þegar hún á í vök að verjast. Áhrifin geta enst lengi og jafnvel styrkst með tímanum. Á seinni tímum hafa búddistar gripið til mótmæla af þessu tagi gegn Víetnamstríðinu og til að berjast fyrir lýðræði í Suður-Kóreu. Þá kveiktu hundrað námsmenn samtímis í sjálfum sér á Indlandi árið 1990 til að mótmæla erfðastéttakerfinu þar í landi. - gb
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Fleiri fréttir Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Sjá meira