Erlent

Páfi egypskra kopta vígður

Forsætisráðherra Egyptalands og fleiri ráðherrar sóttu athöfnina. nordicphotos/AFP
Forsætisráðherra Egyptalands og fleiri ráðherrar sóttu athöfnina. nordicphotos/AFP
Tawandros II. var í gær vígður páfi koptísku kirkjunnar í Egyptalandi. Athöfnin tók nærri fjórar klukkustundir, en hana sóttu meðal annars forsætisráðherra Egyptalands og nokkrir aðrir ráðherrar í hinni íslömsku ríkisstjórn landsins.

Tawandros hefur látið í ljós áhyggjur af því að söfnuður kristinna kopta, sem eiga sér langa sögu í Egyptalandi, fái ekki að njóta jafnræðis í Egyptalandi, nú þegar íslamskir stjórnmálamenn hafa náð ráðandi völdum í landinu.

Koptar eru um það bil tíu prósent þjóðarinnar og hafa æ oftar kvartað undan mismunun á seinni árum.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×