Hertar fjárhagsreglur í ensku úrvalsdeildinni? Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 15. nóvember 2012 12:15 Leikmenn Manchester City fagna meistartitlinum s.l. vor. Nordic Photos / Getty Images
Dave Whelan, eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Wigan, telur að forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar muni samþykkja tillögu þess efnis að liðin geti ekki eytt umfram þær tekjur sem liðin afla sér á hverju tímabili. Kosið verður um tillögu þess efnis í dag og ef tillagan verður samþykkt mun nýja reglan taka gildi strax á næstu leiktíð. Í stuttu máli gengur tillagan út á það að liðin geti ekki eytt peningum í reksturinn umfram þær tekjur sem liðin afla sér. Reglugerðin kallast „break-even rule". Whelan segir í viðtali við BBC: „Ég held að félögin vilji fara þessa leið – ég trúi því," en forráðamenn Fulham eru þeir einu sem hafa lýst yfir andstöðu við þessa tillögu. Englandsmeistaralið Manchester City tapaði um 197 milljónum punda á síðast rekstrarári eða sem nemur 40 milljörðum kr. Og félagið gæti ekki haldið áfram á sömu braut ef nýja reglan verður samþykkt í dag. Samtals var taprekstur á liðunum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð 361 millj. punda eða sem nemur 74 milljörðum kr. Samkvæmt úttekt BBC var hagnaður Manchester United um 4,8 milljarðar kr. (23.3 millj. pund), Chelsea hagnaðist um 290 milljónir kr. (1,4 millj. pund), Arsenal hagnaðist um 7,4 milljarða kr. (36,6 millj. pund), Tottenham hagnaðist um 6,7 milljarða kr. (32,2 millj. pund), Liverpool tapaði 10 milljörðum kr. (49,4 millj. pund), Newcastle tapaði 800 milljónum kr. ( 3,9 millj. pund), og Wigan tapaði 1,4 milljörðum kr. (7,2 millj. pund). Eins og áður segir munu forsvarsmenn úrvalsdeildarliðanna funda í dag. Alls eru liðin 20 og þurfa 14 þeirra að samþykkja tillöguna til þess að hún nái fram að ganga. Whelan telur að einhverjar undanþágur verði samt sem áður leyfðar og hann vill að stig verði tekin af liðum sem uppfylla ekki kröfurnar – og að þau lið fái ekki að taka þátt í Meistaradeild Evrópu eða UEFA. Enska úrvalsdeildin fékk um 70% hækkun þegar samið var á ný um sýningarréttinn frá deildinni – og fá liðin rúmlega 615 milljarða ísl. kr. í sinn hlut á samningstímanum. Eigendurnir vilja ekki að þessi hækkun verði til þess að laun leikmanna hækki gríðarlega í kjölfarið. Ný reglugerð sem snýr að fjárhag lið í Evrópu verður tekin í notkun á næsta tímabili hjá UEFA. Þar fá liðin þrjú ár í aðlögun. Og nái liðin ekki að snúa taprekstrinum í hagnað á þremur árum missa þau keppnisrétt sinn í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Sjá meira