Erlent

Læknirinn að baki fyrstu líffæraígræðslunni er látin

Bandaríski læknirinn og Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Murray er látinn 93 ára að aldri eftir hjartaáfall.

Hans verður minnst í sögunni sem fyrsta læknisins sem tókst að græða líffæri í mann. Þetta gerðist árið 1953 þegar Murray tókst að flytja nýra milli 23 ára gamalla eineggja tvíbura.

Sá tvíburanna sem fékk nýrað frá bróður sínum glímdi við nýrabilun og var ekki hugað líf. Með hinn velheppnuðu ígræðslu náði hann hinsvegar að lífa í átta ár í viðbót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×