Erlent

Stjórnvöld á Spáni tilkynna niðurskurð í dag

Stjórnvöld á Spáni munu tilkynna í dag niðurskurðar og hagræðingaráform sín en reiknað er með að um verði að ræða mesta niðurskurð á fjárlögum landsins á seinni tímum.

Allsherjarverkfall var haldið á Spáni í gærdag til að mótmæla þessum áformum stjórnvalda. Víða kom til átaka milli lögreglunnar og verkfallsmanna á Spáni en ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega í þeim.

Samgöngur fóru meir og minna úr skorðum, þar á meðal þurfti að aflýsa nær öllu flugi milli Spánar og annarra Evrópuríkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×