Minni líkur á aðskilnaði Guðsteinn skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Fögnuður aðskilnaðarsinna Félagar í flokki vinstri lýðveldissinna fögnuðu sigri á sunnudagskvöld.NORDICPHOTOS/AFP
Flokkar aðskilnaðarsinna í héraðsþingi Katalóníu fengu góðan meirihluta í kosningum á sunnudag. Litlar líkur eru þó á að þessir flokkar geti starfað saman, þar sem þeir eru hvor af sínum enda hins pólitíska litrófs. Hægri flokkur Arturs Mas, forseta héraðsins, fékk 50 þingsæti, eða tólf sætum færra en síðast. Flokkur vinstri lýðveldissinna hlaut 21 þingsæti, eða ellefu þingsætum fleiri en síðast. Samsteypustjórn hægri- og miðflokka hefur undanfarið staðið fyrir harkalegum niðurskurði vegna kreppunnar og þar með tapað fylgi en vinstri lýðveldissinnar hafa gagnrýnt allar þær aðgerðir og fyrir vikið aflað sér meira fylgis en nokkru sinni. Katalónía, sjálfstjórnarhérað á norðaustanverðum Spáni, hefur orðið einna verst úti í efnahagsþrengingunum síðustu misserin. Atvinnuleysi í héraðinu er komið upp í 25 prósent. Ríkisstjórn Spánar fagnar niðurstöðum kosninganna, enda hefur hún verið andsnúin öllum áformum um stofnun sjálfstæðs ríkis í Katalóníu. „Kjósendur vilja að stjórnvöld einbeiti sér að því að takast á við efnahagsvandann og skapa fleiri störf,“ sagði Soraya Saenz de Santamaria, aðstoðarforsætisráðherra Spánar. Mas stjórnar eftir sem áður stærsta flokki héraðsþingsins, en þarf nú að fá aðra flokka til liðs við nýja samsteypustjórn. Þar á hann ekki aðra kosti en Lýðflokkinn, sem er hægri-miðjuflokkur, og Sósíalistaflokkinn, sem er vinstri-miðjuflokkur. Báðir þessir flokkar eru algerlega andvígir öllum aðskilnaðaráformum, þannig að Mas getur nú gleymt þeim draumi sínum – að minnsta kosti þetta kjörtímabil.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira