Kim Jong-Un sagður kynþokkafyllsti maður heims BBI skrifar 27. nóvember 2012 22:17 Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu. Mynd/AFP
Málgagn Kommúnistaflokksins í Kína sagði frá því í dag að leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Un, væri kynþokkafyllsti núlifandi maður heims. Þessi undarlegi fréttaflutningur virðist hins vegar byggður á neyðarlegum misskilningi. Vefsíða The People's Daily birti í dag tvær málsgreinar um Kim Jong-Un ásamt 55 myndum af leiðtoganum unga. Þar kom fram að hann væri hreint út sagt draumur allra kvenna með sitt „óhugnalega myndarlega, kringlótta andlit, strákslegan sjarma og boltalaga sköpulag". Málsgreinarnar voru hins vegar teknar orðrétt upp af bandarísku síðunni The Onion, sem er grínsíða sem segir platfréttir. Kínverska málgagnið minntist þó ekkert á kaldhæðni þegar það vísaði á „fréttaveituna The Onion" og tók tíðindunum augljóslega sem blákaldri staðreynd. Fréttirnar birtust bæði á kínversku og ensku á vefsíðu málgagns Kommúnistaflokksins. Kim Jong-Un var sagður gera útaf við fréttastofur með óaðfinnanlegri tískuvitund, töff klippingu og auðvitað hinu víðfræga brosi. Eins og kunnugt er eru Kínverjar eini raunverulegi bandamaður Norður-Kóreu, en landið er afar illa statt vegna fátæktar.Hér er sagt frá þessum misskilningi.
Mest lesið Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Holskefla í kortunum Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Erlent Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Innlent „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Innlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Fleiri fréttir Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Ryan Routh sekur um að reyna að myrða Trump Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Bein útsending: Trump ávarpar allsherjarþingið Hefðu getað sett símkerfi New York á hliðina Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Íbúar í Kína og Hong Kong búa sig undir Ragasa „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Kastrup lokað vegna drónaflugs Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Fyrirgefur morðingjanum Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Sjá meira