Erlent

Þrungið andrúmsloft í Egyptalandi

Frá Kaíró í dag.
Frá Kaíró í dag. MYND/AP
Víða hefur verið mótmælt í Egyptalandi í dag. Stjórnarandstæðingar hafa safnast saman á Frelsistorginu og víðar í höfuðborginni Kaíró.

Þeir mótmæla sérstakri tilskipun Mohamed Mursi, forseta Egyptalands, þess efnis að æðstu valdastofnanir í Egyptalandi geti ekki afturkallað tilmæli forsetans.

Mursi hefur þó bent á að völd hans í forsetaembætti séu takmörkuð og gildi einungis í takmarkaðan tíma.

Það sló í brýnu milli mótmælenda og öryggissveita í Kaíró fyrr í dag og þurfti óeirðalögreglan að beita táragasi gegn stjórnarandstæðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×