Erlent

Fylgi Obama á heimsvísu fimmfalt á við fylgi Romney

Ný skoðanakönnun sýnir að Barack Obama Bandaríkjaforseti nýtur yfirburðafylgis á heimsvísu miðað við andstæðing sinn Mitt Romney.

Um 50% íbúa utan Bandaríkjana eru ánægðir með Obama en aðeins 9% eru hrifnari af Mitt Romney. Rúmlega 40% gáfu ekki upp afstöðu sína.

Það var BBC World Service sem stóð að könnuninni en hún náði til tæplega 22.000 manns í 21 landi.

Mesta fylgið við Romney var í Frakklandi eða 72%. Romney var með meirihluta atkvæða í aðeins einu landi, það er Pakistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×