Erlent

Stjórnvöld í Sýrlandi samþykkja stutt vopnahlé

Stjórnvöld í Sýrlandi hafa fallist á stutt eða fjögurra daga vopnahlé í landinu. Það mun hefjast á morgun fimmtudag og standa fram yfir helgina.

Þetta kemur fram hjá Lakhdar Brahimi sérlegs sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi.

Vopnahléið er gert í tilefni þess að ein mesta trúarhátíð múslima, Eid-al-Adha, hefst á morgun en hún markar upphaf hinna árlegu pílagrímaferða til Mekka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×