Erlent

Þriðjungur hefur aldrei gifst

Um þriðjungur Dana hefur aldrei gengið í hjónaband. Tæpur helmingur er giftur sem stendur.
Um þriðjungur Dana hefur aldrei gengið í hjónaband. Tæpur helmingur er giftur sem stendur.
Rétt tæpur þriðjungur Dana yfir 17 ára aldri er ógiftur og hefur aldrei gifst, að því er fram kemur í úttekt dönsku tölfræðistofnunarinnar. Rétt tæpur helmingur er í hjónabandi sem stendur.

Talsverður munur er á hlutfallinu eftir búsetu. Rúmur helmingur Kaupmannahafnarbúa hefur aldrei gifst, en hlutfallið er lægst á Norður-Sjálandi þar sem aðeins um 24% hafa aldrei gengið í hjónaband. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að um 10% fullorðinna Dana eru fráskilin og um 7% eru ekkjufólk.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×