Erlent

Sýrlenski herinn ræðst á borgina Hama

Sýrlenski herinn hóf í nótt umfangsmikla stórskotahríð og sprengjuárás á borgina Hama sem er sú fjórða stærsta í landinu.

Það eru einkum íbúðahverfi borgarinnar sem árásir þessar beinast að. Búið er að rjúfa allt símasamband við Hama en fregnir af árásinni hafa borist í gegnum gervihnattasíma.

Samhliða þessu heldur þung stórskotahríðin á borgina Homs áfram í morgun en slíkt hefur verið daglegt brauð íbúa þar í hálfa aðra viku. Sum hverfi þeirrar borgar eru nú aðeins rjúkandi rústir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×