Erlent

Lést eftir hákarlaárás

Þrjátíu og níu ára gamall brimbrettakappi lést eftir hákarlaárás við strendur Santa Barbara í Kaliforníu í gær.
Þrjátíu og níu ára gamall brimbrettakappi lést eftir hákarlaárás við strendur Santa Barbara í Kaliforníu í gær. MYND/AFP
Þrjátíu og níu ára gamall brimbrettakappi lést eftir hákarlaárás við strendur Santa Barbara í Kaliforníu í gær. Vinur mannsins varð vitni af árásinni og dró hann í land.

Maðurinn var síðan úrskurðaður látinn af sjúkraliðum stuttu seinna. Yfirvöld í Santa Barbara segja að maðurinn hafi verið illa bitinn.

Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem brimbrettakappi lætur lífið í hákarlaárás við strendur Kaliforníu.

Engu að síður eru atvik sem þessi afar sjaldgæf. Á síðasta ári urðu sjötíu og fimm manns fyrir barðinu á hákarli, þar af létust tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×