Erlent

Trump greiðir 5 milljónir dala fyrir persónuupplýsingar Obama

Bandaríski auðkýfingurinn Donald Trump hefur skorað á Barack Obama, Bandaríkjaforseta, að birta persónuupplýsingar sínar. Í staðinn mun Trump styrkja góðgerðarsamtök um fimm milljónir Bandaríkjadala, eða það sem nemur sex hundruð og þrjátíu milljónum króna.

Í upphafi viku tilkynnti Trump að hann myndi svipta hulunni af stórfrétt sem myndi hafa veruleg áhrif á forsetakosningarnar.

Lengi vel hefur Trump verið framarlega í flokki þeirra sem telja að fæðingarvottorð Obama sé falsað og að forsetinn hafi í raun fæðst í Kenía.

Trump hefur núna gengið skrefinu lengra og skorað á forsetann að birta umsóknareyðublöð fyrir vegabréf, háskólaumsóknir og aðrar persónuupplýsingar.

Hægt er að sjá tilkynningu Trumps hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×