Erlent

Vill verjast herskáu trúleysi

Ummæli hennar hafa vakið umtal í Bretlandi.
Ummæli hennar hafa vakið umtal í Bretlandi. nordicphotos/AFP
„Ég óttast að herská veraldarhyggjuvæðing sé að ná völdum í þjóðfélögum okkar,“ segir Sayeeda Warsi, ráðherra í bresku ríkisstjórninni, og hvetur til þess að trúin fái að gegna stærra hlutverki í stjórnmálum.

„Evrópa þarf að öðlast meiri fullvissu um kristna trú,“ segir hún. Ummæli hennar hafa vakið töluvert umtal í Bretlandi.

Hún er múslími og barónessa, hefur ævilangt sæti í öldungadeild þingsins, er annar tveggja framkvæmdastjóra breska Íhaldsflokksins og hefur óskilgreint ráðherraembætti í ríkisstjórn Davids Cameron.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×