Erlent

Ölvaður Finni gleypti Vísakortið sitt

Finnskur maður mun vakna af áfengisdauða í fangelsisklefa á Amager í Kaupmannahöfn í morgunsárið án peninga, vegabréfs og eiginkonu sinnar.

Í nótt þurfti fjóra lögreglumenn til að yfirburga Finnann eftir að hann hafði setið lengi að sumbli á einum af börum flugstöðvarinnar á Kastrup. Lögreglan veit ekki nein deili á þessum manni þar sem hann náði að gleypa Vísakort sitt í slagsmálunum við lögreglumennina.

Ekki er vitað hvað varð af vegabréfi mannsins. Hinsvegar er vitað að eignakona hans gafst upp á honum og hélt ein heim á leið til Finnlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×