Erlent

Segir ofríki karla ógna hagvexti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
David Cameron segir nauðsynlegt að bæta stöðu kvenna í viðskiptalífinu. Hann fundar nú í Stokkhólmi, meðal annars með Jóhönnu Sigurðardóttur.
David Cameron segir nauðsynlegt að bæta stöðu kvenna í viðskiptalífinu. Hann fundar nú í Stokkhólmi, meðal annars með Jóhönnu Sigurðardóttur. mynd/ afp.
David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir að það þurfi fleiri konur við stjórn fyrirtækja í Bretlandi. Kvennaskorturinn hamli efnahagslegum vexti í landinu. Ef ráðist yrði gegn ofríki karla í viðskiptaheiminum myndi staða fyrirtækjanna batna. Þetta sagði hann á ráðstefnu í Svíþjóð þar sem staddir eru leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna eru saman komnir. Cameron sagði að Bretar gætu lært ýmislegt af Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum í jafnréttismálum. Jóhanna Sigurðardóttir situr fundinn í Svíþjóð fyrir hönd Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×