Innlent

Veiðimenn vilja gott sambýli

Fáir árekstrar í gegnum tíðina segir formaður SVFR.
Fáir árekstrar í gegnum tíðina segir formaður SVFR.
Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu Boot Camp kleift að hefja starfsemi í húsi Fornbílaklúbbs Íslands í Elliðaárdal. Fjórar vikur eru nú þar til laxveiðitímabilið í Elliðaánum hefst.

„Sem veiðimaður þá tel ég að öll aukin umferð á svæðinu sé óæskileg,“ segir Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur. „En að sjálfsögðu þurfa veiðimenn og aðrir náttúruunnendur í Elliðaárdal að geta lifað saman og notið sinnar útivistar án þess að troða öðrum neitt um tær og sem betur fer hafa árekstrar verið tiltölulega fátíðir í gegnum tíðina.“ - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×