Erlent

Búist við fjölmennum mótmælum í Grikklandi

Búist er við fjölmennustu mótmælum hingað til í Aþenu höfuðborg Grikklands og fleiri borgum í landinu í dag.

Verkalýðsfélög landsins hafa boðað til þessara mótmæla vegna samkomulagsins sem náðist í vikunni um nýtt neyðarlán til Grikklands.

Í frétt um málið á BBC segir að yfirvöld í Grikklandi óttist að til blóðugra átaka komi í þessum mótmælum í dag. Jafnvel að staðan verði verri en hún var í Aþenu um þar síðustu helgi þegar kveikt var í 45 byggingum í miðborg Aþenu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×